Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

HETJA ÞJÓÐARINNAR - EÐA ATHYGLISSJÚKLINGUR

Kannski byrjaði þetta allt saman af hugsjón........................................................................................

En ég er svo mikill dóni að ég held að þegar svona "nóboddís" fá athygli eins og Sturla hefur fengið undanfarið veðrist þeir upp í henni og missa sig gjörsamlega.
Mér finnst trukkabílstjórinn ekta svoleiðis dæmi.

En kannski er það ekkert svo slæmt- eða hvað?

Hann er að berjast fyrir alla þjóðina Whistling

kveðja Andrea

 


mbl.is Fyrst og fremst táknræn athöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN HVAR ER ÞETTA GULA!

Hiti smiti!

Mig vantar sól!
Er alveg klár í háhælaða tásuskó, kjól og með sólgleraugun á hausnum! Búin að vaxa allt sem á að vaxa, klippa hárið og nú hangi ég bara heima í sólarskvísugallanum!
Endar með því að maður þarf að koma sér í eitthvað af þessum krummaskuðum úti á landistan!

Kveðja Andrea


mbl.is Hlýjasti maímánuður í Reykjavík síðan 1960
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GLÆPAKVENDI Á LEIÐ TIL LANDSINS

Rice er náttúrulega ekkert annað en ótýnt glæpakvendi og henni ætti ekki að vera hleypt inn fyrir landsteinanna!

Má ég þá frekar biðja um mafíósa frá Litháen í heimsókn en þennan fjöldamorðingja! Er okkur alveg sama hvaða villidýr heimsækja okkur?

Ok! Kannski pínu ýkt- en samt ekki

Kveðja Andrea Rice


mbl.is Rice á leið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLT GOTT OG BLESSAÐ EN-

916  á 40 árum og það er til eitthvað sem heitir Umferðastofa. Helsta hlutverk þess batterís er að finna leiðir til að tryggja öryggi okkar í umferðinni
Hvað ætli Umferðastofa hafi bjargað mörgum lífum með beinum eða óbeinum hætti á þeim tíma sem hún hefur verið starfrækt?

Hvað ætli það hafi margir dáið vegna t.d eiturlyfjaneyslu undanfarin 40 ár?
Eiturlyfjastofa? Dónt theink só

Hver ætli sé algengasta dánarorsök fólks innan við fertugt á Íslandi í dag? 

 


mbl.is 916 látnir í umferðinni á 40 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ANDREA ÓGÓ HIPP OG KÚL

Síðunni hefur borist tölvupóstur frá aðdáanda! Jahérna! Auk þess sem mér var tilkynnt að ég væri ógeðslega skemmtileg, orðheppin, kaldhæðin og "ábyggilega" sæt sem ég staðfesti að sjálfsögðu-
OG að ég væri númer 14 á einhverjum voða fínum vinsældarlista!

Hip Hip Húrrei!

Fór að sjálfsögðu að skoða nefndan lista og mikið rétt!
Nú þarf maður líklega að fara að fela sig fyrir papparössum og brjáluðum aðdáendum! Verð líklega farin að árita símaskrár áður en ég veit af

Kveðja Lady Andrea

 


DJÖFULL ER ÞETTA HALLÆRISLEGT!

Árituð símaskrá??
Eruði ekki að djóka??

Hvað verður það næst? Áritaður álagningaseðill? Áritaður innkaupalisti? Áritað kosningaspjald?

Hryllilega hallærisleg!

Hvenær flettir þú símaskránni síðast?

kveðja Andrea áritaða

 


mbl.is Jólakötturinn í símaskránni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AL-WALEED - REYKJAVÍK - LONDON

Hvernig væri að senda bara Jón Magnússon og Magnús Þór Hafsteinsson til Al-Waleed? Sendum þá með kúst, hamar, núðlur og tjöld!

Þvílíkir drullusokkar sem fólk getur verið þegar það er að rembast við að sýnast hafa samkennd með öðru fólki!
Byggja upp flóttamannabúðir og gera það að heimili fólks!
Ekki beittustu hnífarnir í skúffunni;)

Kveðja Andrea


SECRET DIARY OF A CALL GIRL

Þegar ég var lítil dreymdi mig um að verða vændiskona! Ekki svona "streetwalking" í netasokkabuxum heldur svona í dýrari kantinum

Ég meina; hvaða stelpu dreymir ekki um að láta feita, mjóa, sveitta, andfúla karla hamast á sér og fá borgað fyrir það fullt af peningum!
Ekkert smá glöð að Skjár einn skuli vera að sýna þætti um hamingjusömu hóruna

Ef Skjárinn væri áskriftarsjónvarp myndi ég kaupa áskrift eins og skot!
Hvílíkur klassi!

Kveðja Andrea húkkt


HVAÐ SEM ÞIÐ GERIÐ- EKKI ÁSAKA LÖGREGLUNA UM HROTTASKAP!

Þessi strákfjandi hefur ábyggilega sagt eitthvað andstyggilegt við æruverðugan lögreglumanninn!

Íslenskir lögreglumenn þurfa taserbyssur til að verja sig svona geðsjúklingum- strax í dag!
og við þurfum skambyssur til að verjast geðsjúkum lögreglumönnum

 


mbl.is Mál lögreglumanns til ríkissaksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÆTTU SVO AÐ VÆLA MAGNÚS ÞÓR

Svíar hafa tekið á móti 40.000  írönskum flóttamönnum!!

Og við hvað mörgum? Ekki einum einasta! Enda þurfum við öll að búa í höllum og keyra um á Hummer áður en við getum hjálpað öðrum.

Frjálslyndir og hitt "white trashið" ekki alveg að fatta að það að rétta út hjálparhönd kemur með smá fyrirhöfn


mbl.is Hvetur Bandaríkin og Evrópuríki til þess að taka á móti flóttamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband