Færsluflokkur: Bloggar
30.5.2008 | 13:59
Í FLUGVÉLINNI VORU LÍKA....
Hjón með tvö börn og annað þeirra grenjaði alla leiðina
Sæt flugfreyja og-
Ennþá sætari flugþjónn! En það fannst þeim Karli Matthíassyni og Þórði Þórarinssyni ekkifrétt!
Þeir fengu vondan mat en ágætt Vodka
Who gives a shit um flugdólg? Er það merkilegt af því að það voru Íslendingar í vélinni eða er það merkilegt af því að það voru þessir Íslendingar?
Og hvernig frétti mogginn af þessu? Hringdu þeir inn fréttaskot?
Skiliggi fréttamennskuna orðið á mogganum!
kveðja Andrea Bratislava
Flugdólgur í vél með íslenskum þingmanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
30.5.2008 | 09:40
VILTU GIFTAST MÉR?!
Ok ég skal vera spök
Eflaust hrikalega rómó og allir sem hlut eiga að máli í skýjunum. Og án þess að vilja neitt sérstaklega gefa út á þetta tiltekna bónorð----
Þá finnst mér svona yfir meðallagi hallærislegt!!! Hvernig í fjandanum ætti hún/hann í svona tilfellum að geta sagt annað en já?!
Skuldbindingafóbían mín fer á algjört flug þegar ég les svona. Gvöð hvað ég myndi myrða þann mann sem léti sér detta til hugar að poppa spurningunni fyrir framan annað fólk- hvað þá ókunnugt fólk!
Ég myndi ekki bara segja nei- ég myndi brjóta á honum hnéskeljarnar!
sjá
Kveðja Andrea
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2008 | 21:28
JÁ, NEI TAKK, HELD EKKI, SAMA OG ÞEGIÐ
Það er náttúrulega bara bilun að vilja búa þarna á skjálftavaktinni á Suðurlandi!
Var að tala við fyrrverandi besta vin minn sem býr þarna og það er allt í rúst inni hjá honum! Flatskjár og matarstell í einni kös á gólfinu!
Fyrrverandi vinur af því að héðan í frá set ég stórt spurningamerki við að eiga vini sem eru svo kreisí að vilja búa við þessa geðveiki
Hristingurinn í Reykjavík var alveg nógu mikil spenna fyrir takk fyrir pent!
Kveðja skjálfAndrea
Altari kirkjunnar í molum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
29.5.2008 | 13:09
SKYLDU GEIMFARAPÍPARAR..................
Líka skarta skorunni úti í geimnum?
En "skreppa" og koma viku seinna með eitt rör?
Skrifa himinháa reikninga án þess að vera búnir að gera rass***?
Horfast í augu við brjóstin á manni þegar maður talar við þá?
Segja klámfengna og ekkert fyndna brandara út í eitt- á meðan þeir stoppa í smá stund og gera ekkert nema flagga skorunni?
Sorry! Vottar kannski örlítið fyrir biturð?
Píparar ekki alveg á toppi vinsældarlistans þessa dagana! Nýbúin að borga einum hvítuna úr augunum fyrir að gera ekki neitt- tja nema undirstrika hvað ég er ánægð með brjóstin á mér sem kostuðu ekki krónu
Kveðja Andrea brjóstagóða
Pípara vantar út í geim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.5.2008 | 09:58
HETJA ÞJÓÐARINNAR - EÐA ATHYGLISSJÚKLINGUR
Kannski byrjaði þetta allt saman af hugsjón........................................................................................
En ég er svo mikill dóni að ég held að þegar svona "nóboddís" fá athygli eins og Sturla hefur fengið undanfarið veðrist þeir upp í henni og missa sig gjörsamlega.
Mér finnst trukkabílstjórinn ekta svoleiðis dæmi.
En kannski er það ekkert svo slæmt- eða hvað?
Hann er að berjast fyrir alla þjóðina
kveðja Andrea
Fyrst og fremst táknræn athöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
29.5.2008 | 09:25
EN HVAR ER ÞETTA GULA!
Hiti smiti!
Mig vantar sól!
Er alveg klár í háhælaða tásuskó, kjól og með sólgleraugun á hausnum! Búin að vaxa allt sem á að vaxa, klippa hárið og nú hangi ég bara heima í sólarskvísugallanum!
Endar með því að maður þarf að koma sér í eitthvað af þessum krummaskuðum úti á landistan!
Kveðja Andrea
Hlýjasti maímánuður í Reykjavík síðan 1960 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 22:06
GLÆPAKVENDI Á LEIÐ TIL LANDSINS
Rice er náttúrulega ekkert annað en ótýnt glæpakvendi og henni ætti ekki að vera hleypt inn fyrir landsteinanna!
Má ég þá frekar biðja um mafíósa frá Litháen í heimsókn en þennan fjöldamorðingja! Er okkur alveg sama hvaða villidýr heimsækja okkur?
Ok! Kannski pínu ýkt- en samt ekki
Kveðja Andrea Rice
Rice á leið til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.5.2008 | 16:38
ALLT GOTT OG BLESSAÐ EN-
916 á 40 árum og það er til eitthvað sem heitir Umferðastofa. Helsta hlutverk þess batterís er að finna leiðir til að tryggja öryggi okkar í umferðinni
Hvað ætli Umferðastofa hafi bjargað mörgum lífum með beinum eða óbeinum hætti á þeim tíma sem hún hefur verið starfrækt?
Hvað ætli það hafi margir dáið vegna t.d eiturlyfjaneyslu undanfarin 40 ár?
Eiturlyfjastofa? Dónt theink só
Hver ætli sé algengasta dánarorsök fólks innan við fertugt á Íslandi í dag?
916 látnir í umferðinni á 40 árum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.5.2008 | 14:57
ANDREA ÓGÓ HIPP OG KÚL
Síðunni hefur borist tölvupóstur frá aðdáanda! Jahérna! Auk þess sem mér var tilkynnt að ég væri ógeðslega skemmtileg, orðheppin, kaldhæðin og "ábyggilega" sæt sem ég staðfesti að sjálfsögðu-
OG að ég væri númer 14 á einhverjum voða fínum vinsældarlista!
Hip Hip Húrrei!
Fór að sjálfsögðu að skoða nefndan lista og mikið rétt!
Nú þarf maður líklega að fara að fela sig fyrir papparössum og brjáluðum aðdáendum! Verð líklega farin að árita símaskrár áður en ég veit af
Kveðja Lady Andrea
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.5.2008 | 14:08
DJÖFULL ER ÞETTA HALLÆRISLEGT!
Árituð símaskrá??
Eruði ekki að djóka??
Hvað verður það næst? Áritaður álagningaseðill? Áritaður innkaupalisti? Áritað kosningaspjald?
Hryllilega hallærisleg!
Hvenær flettir þú símaskránni síðast?
kveðja Andrea áritaða
Jólakötturinn í símaskránni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- Benna
- Bergur Thorberg
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gísli Hjálmar
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Heiða Þórðar
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- kiza
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Perla
- Signý
- Sigurbjörn Friðriksson
- Steini Thorst
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svetlana
- Vefritid
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar