Leita í fréttum mbl.is

FETTIR OG BRETTIR

Hún elsku mamma mín er frábær og ég elska hana út af lífinu EN

Hún rak nefið hérna inn hjá mér áðan og sá tími  sem hún stoppaði fór aðallega í að fetta og bretta upp á nefið til að sýna vandlætingu sína á heimilisrekstrinum hjá mér.

Mamma: Andrea mín, ég hef nú bara aldrei séð heimilið þitt í svona ástandi eins og það er núna!
Ég: Hvað áttu við? Drasl?
Mamma: Nei nei, ég hef nú séð drasl hjá þér áður en þetta flokkast nú frekar sem óhreinind elskan
Ég: Hvað meinarðu! Smá ryk
Mamma: Smá ryk! Það er frumskógur af ryki undir borðinu þarna í horninu og tómar vín/bjórflöskur fyrir allra augum!
Ég: Æji mamma láttu ekki svona! Það er ekki pláss í geymslunni og ég þarf að fara í endurvinnsluna. Það er ekki eins og það sé leyndarmál að ég drekki stundum bjór og vín! Svo er búið að vera svo gott veður dögum saman og ég nenni ómögulega að eyða tíma í að ryksuga og þurrka af þegar það er glampandi sól úti!
Sérðu ekki að ég er orðin kaffibrún. (sagt til að dreifa huga mömmunnar og fá hrós fyrir hraustlegt og gott útlit)
Mamma: Verkin fara ekkert í frí þó það sé gott veður. Tekur ekki nema örfáar mínútur að taka til og þurrka af ef þú heldur því við á hverjum degi (lalalalala heyrt þetta lag áður)
Og þú ert allt of brún! Verður að passa þig á þessum geislum þarna sem eru svo hættulegir. Svo heldur fólk ábyggilega að þú sért útlendingur svona dökk! Varla kærir þú þig um það!

Ég: Á ekki til orð

Kveðja Andrea útlendingur

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 22.6.2008 kl. 20:12

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hjúkkit, sem betur fer eru allir í kringum mig farnir að venjast smá drasli og ryknoðrum hér og þar. Annars gætu þeir bara átt sig.

Helga Magnúsdóttir, 22.6.2008 kl. 21:45

3 Smámynd: Ómar Ingi

USSSSSSSSSSSSSSSS

Ómar Ingi, 23.6.2008 kl. 15:38

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 24.6.2008 kl. 00:05

5 Smámynd: Steini Thorst

Hahahahahaha,.....þetta er nú með fyndnari bloggum frá :)))))) Og mikið asssskoti kannast ég við þetta. Að vísu ekki hjá minni mömmu sem alltaf hrósar mér fyrir snyrtimennskuna. Nei, fyrr-fyrrverandi tengdamamma,..eða hmmm, var það fyrr- fyrr- fyrrverandi?  Man ekki alveg en hún var amk ljóshærð.

Steini Thorst, 24.6.2008 kl. 18:32

6 Smámynd: Andrea

Mamma mín er _____________frábær. En henni finnst að ég ætti að vera í langerma/rúllukraga það sem eftir lifir sumar.
Enda er ég alveg orðin kaffibrún

Andrea, 24.6.2008 kl. 18:51

7 Smámynd: Steini Thorst

Já þessi sól er að gera mann að halanegra

Steini Thorst, 24.6.2008 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband