Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

GRRRrrrrRRRRrrrrr

Eins og ég hef kynnst mörgum Hollendingum um ævina þá hef ég aldrei tekið eftir því hvað þeir eru með flott læri!!!

Shit! Ekki ætla ég að missa af leik með Hollendingum á EM 2008

Kveðja Andrea


LOKSINS!

Ég var farin að hafa stórar áhyggjur af þeim þarna hjá olíufélögunum!

Þeir hafa ekki sýnt lífsmark svo dögum skiptir. Að minnsta kosti hálfur mánuður síðan þeir hækkuðu síðast!

Gleður mig að þeir eru við góða heilsu....amk þeir hjá N1

Kveðja Andrea


mbl.is Eldsneytisverðhækkun vegna veikrar stöðu dals og hás olíuverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

16500:125 = 132

132 smokkar á mann í eitt ár! Og það er skítkalt þarna!

Mér finnst þetta sýna litla tiltrú á úrræðasemi vísindamanna til að halda á sér hita!


mbl.is 16.500 smokkar áður en skammdegið skellur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TRÚVERÐUGLEIKI?

Ég finn lítið fyrir honum. En þið?

Og minnkar með hverri svona frétt. Hef það á tilfinningunni að lögregluembættið sé í meiri tilvistarkreppu en undirrituð og þá er nú mikið sagt!!
Kannski full ástæða til að bregðast svona við þarna en í ljósi sögunnar hallast maður heldur að því að svo sé ekki

Kominn tími til að taka til kannski?

Kveðja Andrea


mbl.is Barði og ógnaði fólki fyrir handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BLIND DATING: EKKI GÓÐ HUGMYND!

Ég veit um einn sem myndi glaður horfa á klámmyndir í vinnunni allann sólarhringinn!

Lét vinkonu mína komast upp með að senda mig á blind date um helgina.
Maðurinn var algjört horror!
Leit ágætlega út alveg þangað til hann myndaði fyrstu setninguna: Vá hvað þú ert með falleg augu sagði hann og glápti stíft á brjóstin á mér á meðan
Ég klemmdi aftur augun og spurði hann hvernig þau væru á litinn. Hann sagði blá- BRrrrr vitlaust svar! Þau eru brún

Það sem eftir lifði kvöldsins- sem btw virkaði eins og heil vika- sagði hann lélega klámbrandara og ég átti eftir að klemma fleira saman þetta kvöld en augun.

Nú man ég af hverju ég var búin að lofa sjálfri mér og öðrum að ég myndi aldrei fara á blind date! Það er glatað!
Þessi náungi er fínn kandidat á skattstofuna í Ungverjalandi

Kveðja Andrea blind 


mbl.is Klám í vinnunni tekur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ NÆST?

Æji Hvað ég er orðin þreytt á þessum nobody sem dreymir um að verða somebody!

Hvaða erindi á þessi maður í pólitík? Maður sem  brýtur lög til að vekja athygli á sjálfum sér og kann ekki að skammast sín


mbl.is Sturla stofnar nýjan stjórnmálaflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HUGSUM AÐEINS MÁLIÐ.....Í ÞRJÚ ÁR!

Hvernig í ósköðunum stendur á því að það tekur norska löggjafann þrjú ár að ákveða hvort þetta mál sé þess vert að fara áfram með það?

Það er alveg á hreinu að samkvæmt norskum lögum er bannað að limlesta börnin sín. Enginn afsláttur gefinn á því
Hvernig stendur þá á því að það þurfti þrjú ár til að velta þessari limlestingu fyrir sér?

Eina leiðin til þess að fjölmenningarsamfélög gangi upp er ef allir fara eftir sömu lögum og reglum. Og Vestrænar þjóðir eiga ekki að gefa neinum undanþágur frá því.

Kveðja Andrea


mbl.is Hjón ákærð fyrir að limlesta fimm dætur sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GAMALMENNINN Í FORGANG MEÐ LEIKVELLI?

Þessi frétt er furðuleg af svo mörgum ástæðum! Mér leið eiginlega eins og hún hlyti að koma frá "The Twilight Zone".

Aldraðir heimta að fallið verði frá plönum um brettagarð fyrir krakka og unglinga og settur verði púttvöllur í staðinn fyrir eldri borgara.

Ekkert athugavert við að aldraðir fái líka að fara út að leika en er ekki óþarfi að það sé á kostnað krakkanna?
Hvenær varð það mottó hjá fullorðnu fólki að standa í vegi fyrir því að krakkar fái aðstöðu til að vera úti að leika?

Ein rökin hjá þessum gömlu er að það yrði svo mikill hávaði frá svona brettagarði. 
Ja, mikið helvíti! Er það nú orðið þannig að krakkar eru líka fyrir okkur þegar þau eru úti að leika? Er ekki hægt að teipa fyrir túllann á þeim?
Gætum líka sent liðið upp á öræfi

Kveðja Andrea 


VESALINGS FÓLKIÐ

Hvergi nokkurs staðar í samfélögum mannanna er hægt að finna jafn undarlegt fólk og það sem kennir sig við einhverja trúargrúbbuna!

Er ekki allt í lagi með fólk? Voðaleg skinhelgi og hræsni er þetta. Að einhver afmarkaður hópur skuli vera svona stútfullur af sjálfum sér að halda að hann geti þvingað fyrirtæki til að lúta vilja sínum á þessum forsendum er bara fyndið

Kveðja Andrea


mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HILLARY VELDUR VONBRIGÐUM- VÆGAST SAGT

Fólk verður að kunna að tapa með sæmd. Sérstaklega fólk sem gefur sig út fyrir að hafa nóg til að bera til að sitja sem valdamesti forseti í heimi.

Hillary er alveg úti á túni þegar kemur að því að játa sig sigraða með sæmd. Hún er eins og óþekkur krakki sem neitar að gera það óumflýjanlega- bursta tennurnar.

Frekar hallærislegur endir á kosningabaráttunni hjá henni.

Kveðja Andrea

 


mbl.is Obama leitar að varaforsetaefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband