19.6.2008 | 23:48
TANNHIRÐA
Er ekki búið að segja allt um ísbirni sem hægt er að segja?
Nei, ekki aldeilis!
Ef þið klikkið á myndina og fáið hana upp í almennilega stærð sjáið þið að tannhirða ísbjarna er alveg í messi!
En þar með umræðuefnið dekkað frá a-ö
Kveðja Andrea
![]() |
Hálendisbjörn er hugsanlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.6.2008 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.6.2008 | 23:14
SAGA UM STEFNUMÓT SEM VAR EKKI "DEIT"
Ég er svo glötuð þegar karlmenn eru annars vegar!!
Þessi líka fíni maður búinn að sýna ótrúlega þolinmæði við að fá mig til að fara með sér út. Ég algjörlega sannfærð um að það gæti ekki verið neitt nema tímasóun fyrir mig og peningasóun fyrir hann, alltaf alveg hörð á því að afþakka.
Fékk svo símtal í dag:
Hann: Andrea mín, komdu nú með mér um helgin á Jónsmessugöngu "upp á eitthvað fjall sem ég man ekki hvað heitir"
Andrea: Nei takk! Ég geri ekki svoleiðis! Ekki my cup of tea að þvælast yfir urð og grjót og alls ekki ef það er so and so hátt yfir sjávarmáli!
(smá tiltal en ég alveg harðákveðin)
Hann: Ok komdu þá með mér út að borða í kvöld. Bara svona vinalegur dinner.
Andrea: Við erum búin að ræða þetta alveg í tætlur og svarið er enn það sama. Við erum ekkert að fara á deit!
Hann: Ég er ekki að tala um deit...bara nice dinner á X
Andrea: (hugsar; nei þetta er útrætt mál) En sagði; Já takk
Needless to say við þrættum um kvenréttindi allan tímann enda hann forpokað karlrembusvín.
En það er bara svo langt síðan ég hef borðað þarna og maturinn er snilld!
Og hann er karlremba sem opnar bílhurðina fyrir mann, dregur stólinn frá borðinu og aðstoðar mann með jakkann!
Djöfull er næs að vera trítuð eins og prinsessa annað slagið
Kveðja Andrea
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2008 | 15:42
FYRIRMYNDIN GEIR HILMAR HAARDE
Í DV í dag er sagt frá BMW bensínhák Geirs Haarde.
Það er jú sami Geirinn og var að hvetja Íslendinga til að keyra um á sparneytnum bílum og stunda vistvænan akstur.
BMW Geirs fær verstu einkunn hvað varðar sparneytni og útblásturinn er margfaldur á við vistvænan bíl.
Hann skutlast á þessari græju frá Alþingishúsinu að Stjórnarráðinu. En það eru tæplega 400 metrar.
Hvernig væri að forsætisráðherrann okkar færi eftir eigin ráðum og já...væri góð fyrirmynd hvað þessi mál varðar?
Kveðja Andrea
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.6.2008 | 12:18
JAFNRÉTTISHVAÐ??
Jafnréttissetur og jafnréttisskóli???
Er fólk að tapa sér hérna? Hvernig væri bara að t.d opinberar stofnanir hættu að mismuna kynjum? Þarf að setja á fót skóla og setur til að kenna fólki hvernig það kemur vel fram við náungann óháð kyni?
Djöfulsins ruglið sem þessi jafnréttisumræða er komin í!!!!
Kveðja Andrea
![]() |
Skrifað undir samkomulag um jafnréttisskóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.6.2008 | 09:40
ÞAÐ ER EINHVER Í RUGLINU HÉRNA....
Og það er ekki ég!!!
Ég er alveg viss um að það er hásumar! Og á sumrin á EKKI að vera snjór! Hvorki þekja né skaflar!
Hvaða rugl er þetta?
Getur ekki einhver látið veðurguðina og ísbirnina vita að þeir eru að villast!!!
Kveðja Andrea
![]() |
Snjóþekja á Fjarðarheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 19. júní 2008
Bloggvinir
-
Benna
-
Bergur Thorberg
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Hjálmar
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Heiða B. Heiðars
-
Heiða Þórðar
-
Jens Guð
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
kiza
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Perla
-
Signý
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Steini Thorst
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Svetlana
-
Vefritid
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar