27.5.2008 | 21:31
SECRET DIARY OF A CALL GIRL
Þegar ég var lítil dreymdi mig um að verða vændiskona! Ekki svona "streetwalking" í netasokkabuxum heldur svona í dýrari kantinum
Ég meina; hvaða stelpu dreymir ekki um að láta feita, mjóa, sveitta, andfúla karla hamast á sér og fá borgað fyrir það fullt af peningum!
Ekkert smá glöð að Skjár einn skuli vera að sýna þætti um hamingjusömu hóruna
Ef Skjárinn væri áskriftarsjónvarp myndi ég kaupa áskrift eins og skot!
Hvílíkur klassi!
Kveðja Andrea húkkt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.5.2008 | 16:32
HVAÐ SEM ÞIÐ GERIÐ- EKKI ÁSAKA LÖGREGLUNA UM HROTTASKAP!
Þessi strákfjandi hefur ábyggilega sagt eitthvað andstyggilegt við æruverðugan lögreglumanninn!
Íslenskir lögreglumenn þurfa taserbyssur til að verja sig svona geðsjúklingum- strax í dag!
og við þurfum skambyssur til að verjast geðsjúkum lögreglumönnum
![]() |
Mál lögreglumanns til ríkissaksóknara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
27.5.2008 | 16:29
HÆTTU SVO AÐ VÆLA MAGNÚS ÞÓR
Svíar hafa tekið á móti 40.000 írönskum flóttamönnum!!
Og við hvað mörgum? Ekki einum einasta! Enda þurfum við öll að búa í höllum og keyra um á Hummer áður en við getum hjálpað öðrum.
Frjálslyndir og hitt "white trashið" ekki alveg að fatta að það að rétta út hjálparhönd kemur með smá fyrirhöfn
![]() |
Hvetur Bandaríkin og Evrópuríki til þess að taka á móti flóttamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
27.5.2008 | 13:39
VÆNTINGAVÍSITALA!
Fyndin þessu nýju orð og mælingar sem notuð eru til að segja okkur hvernig okkur líður.
En ég hef það bara ágætt, þakka þér!
Væri samt ekkert hissa þó að fólk væri almennt í rusli enda keppast miðlarnir og pólitíkusarnir við að mála skrattann á vegginn
Alveg sama hvert maður snýr sér, allsstaðar er dauði og djöfull!
Þarf að borga aðeins meira um hver mánaðarmót, maturinn er dýrari og bensínið.
---------------------EN
Það er að komið sumar og ég bíð miklu spenntari eftir sólinni en væntingaverðbólgugengisfellingarspánni
Kveðja Andrea engin helvítis vísitala
![]() |
Væntingar neytenda ekki minni í sjö ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
27.5.2008 | 07:58
MINNINGARGREINABLOGGARAR!!
VAKNA!
Amerískt celeb var að kasta frá sér öndinni og allir minningargreinabloggarar drífa sig í stellingar!
Hver skyldi nú hrista úr erminni fróðlegustu minningargreininni?
Hver skyldi vera fyrstur með minningargrein?
Hver ætli sé með sveittan skallann á imdb.com og að gúggla eins og brjálaður á Akureyri í dag?
Spennan er að drepa mig
Kveðja Andrea spennta
![]() |
Sidney Pollack látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 27. maí 2008
Bloggvinir
-
Benna
-
Bergur Thorberg
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Hjálmar
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Heiða B. Heiðars
-
Heiða Þórðar
-
Jens Guð
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
kiza
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Perla
-
Signý
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Steini Thorst
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Svetlana
-
Vefritid
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- 11.5.25
- Sarah Paine um forhertan viljann til að fara í stríð
- Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar ...
- Fyrstu tíu dagar maímánaðar 2025
- 76% fjölgun bjargráðsígræðslna á LSH
- DeepSeek spjall.
- Reykjavík, maí 2025
- Páfi biður fyrir friði
- Hvert stefnir Evrópa?
- Þegar sósíalisminn var stöðvaður