Leita í fréttum mbl.is

AUGLÝSI EFTIR VESTURFARA!!!!

Mig VANTAR SVO svona síma!

Ég VERÐ að fá svona síma- helst daginn sem hann kemur í búðir takk fyrir pent! Græjudellan í mér er með verki!

iPhoneiPhoneiPhone Verð að fá hann!

Kveðja iPho....ég meina Andrea


mbl.is Apple kynnir ódýrari 3G iPhone farsíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GRRRrrrrRRRRrrrrr

Eins og ég hef kynnst mörgum Hollendingum um ævina þá hef ég aldrei tekið eftir því hvað þeir eru með flott læri!!!

Shit! Ekki ætla ég að missa af leik með Hollendingum á EM 2008

Kveðja Andrea


LOKSINS!

Ég var farin að hafa stórar áhyggjur af þeim þarna hjá olíufélögunum!

Þeir hafa ekki sýnt lífsmark svo dögum skiptir. Að minnsta kosti hálfur mánuður síðan þeir hækkuðu síðast!

Gleður mig að þeir eru við góða heilsu....amk þeir hjá N1

Kveðja Andrea


mbl.is Eldsneytisverðhækkun vegna veikrar stöðu dals og hás olíuverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

16500:125 = 132

132 smokkar á mann í eitt ár! Og það er skítkalt þarna!

Mér finnst þetta sýna litla tiltrú á úrræðasemi vísindamanna til að halda á sér hita!


mbl.is 16.500 smokkar áður en skammdegið skellur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TRÚVERÐUGLEIKI?

Ég finn lítið fyrir honum. En þið?

Og minnkar með hverri svona frétt. Hef það á tilfinningunni að lögregluembættið sé í meiri tilvistarkreppu en undirrituð og þá er nú mikið sagt!!
Kannski full ástæða til að bregðast svona við þarna en í ljósi sögunnar hallast maður heldur að því að svo sé ekki

Kominn tími til að taka til kannski?

Kveðja Andrea


mbl.is Barði og ógnaði fólki fyrir handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BLIND DATING: EKKI GÓÐ HUGMYND!

Ég veit um einn sem myndi glaður horfa á klámmyndir í vinnunni allann sólarhringinn!

Lét vinkonu mína komast upp með að senda mig á blind date um helgina.
Maðurinn var algjört horror!
Leit ágætlega út alveg þangað til hann myndaði fyrstu setninguna: Vá hvað þú ert með falleg augu sagði hann og glápti stíft á brjóstin á mér á meðan
Ég klemmdi aftur augun og spurði hann hvernig þau væru á litinn. Hann sagði blá- BRrrrr vitlaust svar! Þau eru brún

Það sem eftir lifði kvöldsins- sem btw virkaði eins og heil vika- sagði hann lélega klámbrandara og ég átti eftir að klemma fleira saman þetta kvöld en augun.

Nú man ég af hverju ég var búin að lofa sjálfri mér og öðrum að ég myndi aldrei fara á blind date! Það er glatað!
Þessi náungi er fínn kandidat á skattstofuna í Ungverjalandi

Kveðja Andrea blind 


mbl.is Klám í vinnunni tekur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband