Leita í fréttum mbl.is

HILLARY VELDUR VONBRIGÐUM- VÆGAST SAGT

Fólk verður að kunna að tapa með sæmd. Sérstaklega fólk sem gefur sig út fyrir að hafa nóg til að bera til að sitja sem valdamesti forseti í heimi.

Hillary er alveg úti á túni þegar kemur að því að játa sig sigraða með sæmd. Hún er eins og óþekkur krakki sem neitar að gera það óumflýjanlega- bursta tennurnar.

Frekar hallærislegur endir á kosningabaráttunni hjá henni.

Kveðja Andrea

 


mbl.is Obama leitar að varaforsetaefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÓÐURSJÚKASTA ÞJÓÐ Í HEIMI?

Þvílíkt fár út af einu ísbirni?
Er fólk að tapa sér eða er þetta bara svona mál sem öllum finnst að allir hafi áhuga á að heyra sína skoðun á málinu?
Þetta er ÍSBJÖRN!! Hvernig væri að eyða þó ekki væri nema broti af þessu púðri sem fer í þetta mál í t.d allslausa krakka sem halda til í skúmaskotum borgarinnar?
Í staðinn fyrir að heimta höfuð lögreglustjórans í Skagafirði fyrir höfuð ísbjarnar væri t.d hægt að heimta höfuð yfirmanna "velferðarsviðs" ffyrir að láta eins og þessir krakkar séu ekki til

Þeir hjá borginni eru reyndar ekki búnir að gefa út veiðileyfi á þessa krakka, en þeir gætu alveg eins gert það

Kveðja Andrea með andarteppu af hneykslun


SEGIÐ SVO AÐ KONUR EIGI EKKI JAFN SVARTAR HLIÐAR OG KARLAR!

Ekki jafn algengt og oftast ekki jafn gróft, en þegar ég las þessi frétt fékk ég hroll!

Ótrúlega algengt að konur finni sig knúna til að sýna samúð og/eða telja sig geta "bjargað" óþverrum eins og þessum Fritzl!

Efast ekki um að meðal þessar kvenna er slatti af mæðrum.
Huggulegt

Kveðja Andrea


Á HRAÐA SNIGILS!

Eitthvað virðist mjakast í átt að eðlilegu jafnvægi kynjanna í stórnunarstörfum.

En VÁ hvað það gerist hægt! Ætti að verða orðið þolanlegt um næstu aldamót eða svo!
Engin kona í stjórn 57% fyrirtækja! Hljóta allir að sjá að myndin er verulega skökk- meira að segja þeir sem sjá djöfulinn í öllum feministum

Kveðja Andrea


mbl.is Konur 13% stjórnarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRÁBÆR PISTILL KOLBRÚNAR Í MOGGANUM!

 

 Frábær grein eftir Kolbrúnu Bergþórs í Mogganum í dag! Þessi kona segir þetta bara eins og það er!
Kveðja Andrea

Á sumrin leggst pólitísk umræða á Íslandi í dvala og þegar Frjálslyndi flokkurinn á í hlut þá er rétt að þakka alveg sérstaklega fyrir pólitíska þögn. Lengi vel virtist Frjálslyndi flokkurinn ekki hafa mikið annað fram að færa á hinu pólitíska sviði en upphrópanir um kvótakerfið.
Svo fóru menn innan flokksins að horfa í kringum sig og tóku eftir því að allnokkuð væri um að útlendingar settust að hér á landi, og sumir þeirra meira að segja með annan hörundslit en Íslendingar og játuðu jafnvel aðra trú en hér tíðkast.
Þá fæddist nýtt baráttumál; andstaðan við búsetu útlendinga á Íslandi. Þeir sem hlusta á málflutning manna sem áberandi eru í Frjálslynda flokknum komast ekki hjá því að nema þessi skilaboð.
Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslyndra, kemst iðulega í hamslaust uppnám þegar rætt er um væntanlega búsetu útlendinga hér á landi, nema þegar útlendingarnir eru frá virðulegum löndum eins og Norðurlöndum eða öðrum skárri Evrópuþjóðum. Magnús Þór er iðinn við að mæta í viðtalsþætti og ræða opinskátt um skoðanir sínar.
Daginn eftir er hann alltaf jafn einlæglega hissa þegar hann er kenndur við útlendingahatur. Hann ætti þó að hafa skilið hvað hann sagði.

Viðar Guðjohnsen er ungur maður sem hefur plantað sér niður við hlið Magnúsar Þórs og þreytist ekki á að senda frá sér yfirlýsingar um að Ísland sé fyrir Íslendinga. Þegar Viðar, sem er í forystu í ungliðahreyfingu flokksins, er gagnrýndur fyrir ummæli sín svarar hann iðulega eins og hann sé í hlutverki fórnarlambs og hafi mætt aðkasti og fordómum samlanda sinna.
Formaður Frjálslynda flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, kemur síðan hvað eftir annað í fjölmiðla og segir máttleysislega að í Frjálslynda flokknum séu ekki útlendingahatarar. Slíkt tal sé áróður pólitískra andstæðinga. Í engum öðrum íslenskum stjórnmálaflokki kæmust varaformaður og formaður ungliðahreyfingar upp með það tal sem tíðkast í Frjálslynda flokknum varðandi búsetu útlendinga hér á landi.
Pólitík sem byggist á mannfyrirlitningu er skelfileg pólitík. Þetta vita stjórnmálamenn sem taka starf sitt alvarlega og þeir sitja ekki þegjandi þegar slíkt tal fer fram í nafni flokks þeirra. Formaður Frjálslynda flokksins ætti að nýta sumarfríið í að íhuga hvaða skilaboð hann vilji að flokkurinn sendi þjóðinni. Eins og áhrifamenn innan flokksins tala þá er Frjálslyndi flokkurinn málsvari þeirra sem andúð hafa á búsetu útlendinga hér á landi. Enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi vill vinna náið með Frjálslynda flokknum vegna þess vonda stimpils sem flokkurinn hefur. Formaður flokksins hefur lítið gert til að reyna að afmá þann stimpil. Kannski veit hann að það er svo til vonlaust verk. Þeir sem hafa andúð á búsetu útlendinga hér á landi hafa fundið sinn flokk. |

 


ÓTRÚLEGA FLOTTUR "POPPER"!

Ég ELSKA þessa þætti!

Hér er einn brilliant!


Bloggfærslur 4. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband