2.6.2008 | 23:02
ÖMURLEGASTA DJOBBIÐ Í HOLLYWOOD,
Hlýtur að vera-að-lyfta-kaffibolla-vinnan í þættinum hans Jay Leno!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2008 | 19:17
LEITIN AÐ SUMAR-KÆRASTANUM GENGUR EKKI VEL
Ég tók út nokkra á börum bæjarins um helgina og óhætt að segja að sú leit hafi ekki borið mikinn árangur!
Sá reyndar einn sem mér leist skrambi vel á- en þegar ég sá hann up close áttaði ég mig á því að___________________ oh well, skiptir ekki máli :)
Annar var nokkuð álitlegur en missti áhugann þegar ég prufaði að dansa við hann. Maðurinn dansaði eins og spastískur geðsjúklingur!
Þriðji álitlegi var eiginlega bara gullfallegur!! En svo talaði hann______________________
Ég er gagnkynhneigð og ólofuð OG vill frekar halda því áfram en að enda með grútleiðinlegum pappakassa. Hvort sem við erum að tala um sumarkærasta eða heilsárskærasta!
En ég er kvenkyns og maður gæti ímyndað sér eftir að lesa þessa grein að það væri verið að gefa í skyn að konur vildu bara gifta sig- sama hverjum!
Kveðja Andrea
![]() |
Karlar kjósa fremur einlífi en slæmt hjónaband |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
2.6.2008 | 17:15
ÞAÐ ER ALDEILIS!
Japanir eru bara banhungraðir í hvalkjöt! Kristján Loftsson er ótrúlega naskur á hungur japanskra neytanda
Ekki dettur mér í hug að væna manninn um að segja bara það sem hentar honum betur.
Væri samt fínt að fá rök fyrir þessari fullyrðingu
Kveðja Andrea
![]() |
Segir Japana hungra í hvalkjöt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.6.2008 | 11:28
SPENNÓ TÍMAR FRAMUNDAN
Ég hef ekki verið spennt yfir Morgunblaðinu í ---------------------- svo langt aftur sem ég man.
Þeir auglýstur nýtt og breytt útlit fyrir ca 2 árum síðan og ég var í vandræðum með að sjá í hverju munurinn lá.
Nema að stundum koma rauðar fyrirsagnir á baksíðunni eins og skrattinn úr sauðalæknum!!
En með nýju fólki í brúnni geri ég mér vonir um að Morgunblaðið komi tvíeflt aftur til nútímans!
Kveðja Andrea
![]() |
Ritstjóraskipti á Morgunblaðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.6.2008 | 10:30
RÉTTDRÆPIR SVÍAR
VÁ hvað við hefðum orðið fúl!! Við hefðum sko bölvað Svíum, dómurum, tíma-markteljurum, ljóshærðum, rauðhærðum og litlum tippum til helvítis og baka aftur ef það hefði verið nappað af okkur mark- hvað þá þetta mark!
Svíar hefðu verið réttdræpir hvar sem til þeirra hefði náðst!
En mér finnst þeir tapa vel og taka vel á þessu.
Mér finnst þeir smart
Kveðja Andrea
![]() |
Svíar kvarta en kæra ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.6.2008 | 09:33
KONUR OG KYNLÍF
Þessi könnun, þó gömul sé er áhugaverð.
Ég var með 6 vinkonum í smá reunion um helgina. Þar, eins og svo oft áður þegar ég hef verið í félagsskap kvenna, missti ég hökuna niður á gólf
Af þessum sex vinkonum eru fjórar giftar, ein í tiltölulega nýrri sambúð og ein með kærasta sem hún hefur átt lengi
Fjórar þeirra segjast ekki sækja eftir kynlífi!!!
Þeim væri nánast sama þó þær þyrftu aldrei að stunda kynlíf!
Ein sagðist ekki geta verið án þess en fengi nánast aldrei fullnægingu nema þegar hún væri ein með sjálfri sér og síðasta (gift lengst) sagðist vilja sitt kynlíf amk fjórum sinnum í viku og engar refjar.
Ein spurning úr könnuninni:
Hvort finnst þér betra að vera með karlmanni með stóran eða lítinn lim?
20 % sögðust kjósa stóran lim
36 % sögðust vilja milðungs stóran lim
42% sögðu það ekki skipta máli
1,3 % sögðust kjósa lítinn lim
Yeah right!
Kveðja Andrea
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 2. júní 2008
Bloggvinir
-
Benna
-
Bergur Thorberg
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gísli Hjálmar
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Heiða B. Heiðars
-
Heiða Þórðar
-
Jens Guð
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
kiza
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Perla
-
Signý
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Steini Thorst
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Svetlana
-
Vefritid
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar